Myndirðu vilja gista þarna?

Það er aragrúi af mótelum í Bandaríkjunum. Þetta er eitt af þeim og heitir einfaldlega The Clown Motel og er staðsett í Nevada eyðimörkinni.

Það er, eins og nafnið gefur til kynna, trúðaþema á þessu móteli og það fer ekkert á milli mála þegar maður kemur þarna inn að þemað er tekið alla leið.

Það hjálpar ekki til að mótelið er við hliðina á kirkjugarði þar sem eru yfir 300 grafir.

Allir sem hvíla í kirkjugarðinum létust úr dularfullri farsótt sem herjaði á íbúa á þessu svæði og þurrkaði út flesta íbúa staðarins á árunum 1901 – 1911.

 

 

SHARE