Nýjasta æðið á Instagram er kallað Toblerone tunnel. Þú gætir haldið að hér væri loksins komið æði sem fæli í sér að „gúffa“ í sig þessu ljúffenga súkkulaði, en það er aldeilis ekki þannig.
Toblerone tengingin er bara vegna þríhyrnda formsins. Konur eru semsagt að sýna hið þríhyrnda gat sem myndast milli læranna.
Þetta er náttúrulega furðulegt og komið út fyrir allt sem mitt ímyndunarafl ræður við. Mér finnst þetta samt mun betra en #Thighgap en það var æði þar sem var verið að sýna bilið á milli læranna með ökklana saman.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.