Ostabrauð – Dásamlega ljúffengt

Þetta dásamlega ostabrauð er rosalega gott og er úr smiðju Eldhússystra.

Ostabrauð
2,5 tsk þurrger
3 dl kalt vatn
Rifinn börkur af einni sítrónu
1 krukka ferskt timjan (eða eitt búnt?, krukka er kannski bara sænsk þýðing 🙂 )
1 dl smátt söxuð steinselja
2 msk ólívuolía
1 tsk salt
6,5 dl hveiti

Fylling
200 gr rifinn cheddarostur (eða annar ostur)
Saltflögur
Ólívuolía/smjör

Blandið þurrgerinu, sítrónuberkinum, kryddunum, saltinu og hveitinu saman. Bætið olíunni og vatninu út í og hnoðið vel, 5 – 10 mínútur í vél. Látið hefa sig í ca. 1 klst.
Fletjið deigið út, í rétthyrning – eins og þegar þið búið til snúða, ca. 30×40 cm. Stráið ostinum yfir og rúllið lengjunni upp. Skerið í 10 – 12 bita.
Smyrjið lausbotna form og raðið bitunum ofan í. Látið hefast í 30 mínútur. Stillið ofninn á 220 gr. Stráið flögusalti yfir brauðið og bakið svo í u.þ.b. 30 mín eða þar til fallega gullinbrúnt. Penslið með smjöri eða ólívuolíu áður en brauðið er borið fram.

Endilega smellið einu like-i á Facebook síðu Eldhússystra.

Sjá einnig: Ostakökubrownie með hindberjum

SHARE