
Þeir sem hafa smakkað og keypt Pistasíurjómi vita það að hann er dásamlega góður á bragðið en svakalega dýr. Okkur fjölskyldunni langaði svo mikið að prufa að gera hið fræga Dubai súkkalaði frá grunni og í því er notaður pistasíurjómi. Í stað þess að eyða mörg þúsund krónum í eina krukku af þessum rjóma fundum við þessa geggjuðu og einföldu uppskrift:

Uppskrift:
- 150 gr. – ósaltaðar Pistasíur
- 180 ml. – Nýmjólk
- 30 gr. – Ósaltað smjör
- 100 gr. – Hvítt súkkulaði
- 1 msk – Flórsykur
Aðferð:
Byrjið á því að sjóða pístasíurnar í potti í c.a. 4-5 min. Takið þær svo úr pottinum og setjið á þurrt viskustykki eða handklæði og þerrið. Því næst plokkið þið skinnið utan af pistasíunum en það fellur af þeim mjög auðveldlega eftir hafa hafa sóðið þær.



Setjið svo skinnlausar pistasíurnar í marvinnsluvel ásamt 60 ml af mjólkinni og flórsykrinum. Blandið þar til að blandan líkist svolítið pestó. Gætuð þurft að stoppa nokkrum sinnum og ýta blöndunni með sleið.



Sitjið restina af mjólkinni eða 120 ml í pott ásamt hvíta súkkulaðinu og smjörinu. Bræðið á lágum hita og hrærið saman. Því næst færið þið pistasíublönduna í blandara og hellið mjólkur/hvítsúkkulaðiblöndunni í blandarann. Blandið í c.a. 2-3 min eða þar til blandan er orðið silkimjúk og falleg.




Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














