Rice Krispies hnetusmjörsbar

Þetta er svo dásamlega gott! Kemur auðvitað frá snillingunum á Matarlyst á Facebook.

Hráefni

100 g Rice krispies
40 g haframjöl
115 g fljótandi hunang
270 g hnetusmjör
1 tsk vanilludropar
Hnífsoddur salt

Ofaná

150 g suðusúkkulaði
1 tsk olía bragðlaus

Aðferð

Setjið öll hráefnin saman í skál blandið vel saman með höndum, setjið bökunnarpappír í form þrýstið blöndunni ofaní fínt að hafa molana ca 2,5 cm þykka. Kælið.

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði, bætið olíunni út í hrærið vel saman. Hellið yfir barinn og dreifið úr, látið aftur inn í ísskáp.

Takið út látið standa á borði um stund skerið niður í hæfilega stóra bita, þeir geymast vel í kæli en gott er að taka þá út og láta standa um stund eru bestir við stofuhita.

SHARE