Sælgætisís

Þessi girnilegi sælgætisís er frá Gotterí og gersemum. Tilvalinn fyrir jólaboðið eða gamlárskvöld.

 

Sælgætisís

  • 6 egg aðskilin
  • 130gr púðursykur
  • 1 tsk vanillusykur
  • ½ l þeyttur rjómi
  • 200 gr Toblerone (100 gr brætt og 100 gr saxað)
  • 100 gr Oreo (mulið)
  • 100 gr Daim (saxað)

  1. Þeytið saman eggjarauður og púðursykur þar til létt og ljóst.
  2. Bætið vanillusykri út í ásamt bræddu Toblerone og blandið vel.
  3. Vefjið þeytta rjómanum því næst varlega saman við eggjarauðublönduna.
  4. Setjið saxað Toblerone, Daim og mulið Oreo í blönduna og vefjið saman.
  5. Að lokum eru eggjahvíturnar stífþeyttar og þeim vafið með sleikju saman við blönduna.
  6. Öllu hellt í form (smellurform gott ef gera á köku en annars hægt að nota hvað sem er og gera ískúlur þegar frosið).
  7. Plastið ísinn vel og frystið helst í sólarhring og berið síðan fram með heitri Toblerone sósu og þeyttum rjóma.

Heit Toblerone sósa

  • 300 gr Toblerone (saxað gróft)
  • ½-1 dl rjómi (eftir því hversu þykka þið viljið hafa sósuna)
  1. Setjið saman í pott og hitið við miðlungshita þar til bráðið saman. Takið af hellunni og leyfið aðeins að þykkna áður en sett er út á ísinn.

 

SHARE