Sjálfsfróun kvenna

Sjálfsfróun er umræðuefni sem hefur verið í gegnum tíðina hálfgert feimnismál og þá sérstaklega hjá stelpum. Sjálfsfróun ætti alls ekki að  vera það,  þar sem flestar konur stunda sjálfsfróun og er hún mjög heilsusamleg. En sem betur fer hefur umræðan verið meiri  undanfarin  ár um sjálfsfróun því það er eitthvað sem við ættum ekkert að vera feimnar að tala um.

Sjálfsfróun getur hjálpað þér á ýmsa  vegu.Til dæmis þekkja þær sem stunda sjálfsfróun sjálfa sig mun betur. Sjálfsfróun getur leitt til betra kynlífs með maka vegna þess að fólk sem þekkir eigin líkama vel getur  betur leiðbeint kynlífsfélaga sínum og notið betra kynlífs.  

Sjá einnig: Fjölmargir kostir sjálfsfróunar

Það eru til margar  mismunandi leiðir til þess að stunda sjálfsfróun  og þarf hún ekki alltaf að enda með fullnægingu.  Léttar snertingar og nudd á snípnum getur verið góð byrjun á sjálfsfróun. Snípurinn er mjög  næmt  svæði og margar konur fá fullnægingu með því að örva hann. Einnig getur verið gott að prufa sig áfram með því að setja fingur inn í leggöngin. En með réttri sveigju á fingrinum er hægt að örva  g-blettinn. Sjá nánar um hann  hér.   

Kynlífstæki eru frábær til að nota í sjálfsfróun og  sleipiefni  gerir hana en betri hvort sem þú notar tæki eða hendurnar.  Vinsælustu  tækin í dag er án efa  sogtækin  sem hafa slegið í gegn  undanfarin  ár, en þau örva snípinn á svipaðan hátt og þegar þér eru veitt munnmök.  Mörgum finnst líka gott að nota  titrara  sem ná til  g-blettsins og jafnvel  titrara  sem örva  g-blettinn og snípinn á sama tíma eins og  kanínutitrarar  gera. Það getur verið gaman að breyta til og nota kynlífstæki til að hjálpa sér að komast á leiðarenda. En það getur líka verið gaman að gera það  öðruvísi  eins og að örva aðra staði eins og geirvörturnar  því þær eru mjög næmar.  Það er einnig tilvalið að prufa sig áfram með mismunandi stellingar, þegar þú ert að  fróa  þér þarftu ekki endilega að liggja á bakinu. Það getur verið mjög æsandi að prufa aðrar stöður eins og  doggy, sitjandi eða jafnvel í sturtu/baði. Það eru óteljandi möguleikar í boði, það er bara byrja prufa sig áfram og leika sér.

Grein birtist upphaflega á Hermosa.is og er birt með góðfúslegu leyfi þeirra. 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here