Sjúklega góð súkkulaðikaka með kanilfyllingu

Þessi kaka leynist í gömlum Gestgjafa – ég hef bakað hana margoft og hún er alltaf jafn dásamleg. Ekta sunnudags. Eða bara mánudags. Þriðjudags kannski. Hverjum er ekki sama? Það má vel borða köku alla daga.

IMG_7133

Kanil- og súkkulaðiskúffa

240 grömm hveiti

2 teskeiðar lyftiduft

1 teskeið kanill

2 matskeiðar kakó

250 grömm sykur

2 og 1/2 dl mjólk

2 egg

150 grömm brætt smjör

Á milli:

2-3 matskeiðar sykur

1 teskeið kanill

2 teskeiðar kakó

  • Hitið ofninn í 180°. Sigtið hveiti, lyftiduft, kanil og kakó í hrærivélarskál og bætið sykri út í. Hellið mjólk og eggjum í skálina og hrærið saman í sirka tvær mínútur.
  • Hellið smjöri út í á meðan vélin gengur og blandið öllu vel saman.
  • Setjið bökunarpappír í botninn á 20×30 cm formi og jafnið helminginn af deiginu í það.
  • Blandið sykri, kanil og kakói saman og stráið ofan á deigið í forminu. Jafnið síðan afganginum af deiginu ofan á og bakið kökuna í miðjum ofni í 25 mínútur.

IMG_7125

Krem

150 grömm flórsykur

2 matskeiðar kakó

3 matskeiðar brætt smjör

3 matskeiðar kaffi eða vatn

2 teskeiðar vanilludropar

IMG_7135

Einföld, fljótleg og alveg hrikalega góð. Ég lofa!

Tengdar greinar:

Sjúklega góðar súkkulaðipönnukökur í hollari kantinum

Rice Krispies kubbar með Oreo & hvítu súkkulaði

Nutellasúkkulaðikaka: TVÖ innihaldsefni

SHARE