Snjóboltastríð í „slow motion“ – Fá bolta í andlitið

Það hafa allir sínar aðferðir við að koma sér í jólaskap. Sumir finna jóla-andann hellast yfir þá þegar þeir sitja á gólfinu og pakka inn gjöfum, baka piparkökur eða hlusta á jólalög.

Starfsmenn auglýsingastofunnar Exit10 virðast hinsvegar fá eitthvað út úr því að láta kasta á sig snjóboltum.

Myndböndin eru tekin upp í „slow motion“ og sýna hvernig snjóboltarnir dúndrast framan í starfsmennina og viðbrögðin láta ekki á sér standa.

Þetta er hresst, hresst og bara skemmtilegt!

Hér er annað myndband af uppátækinu. Þeir stóðu greinilega í röð til þess að fá snjóbolta í andlitið!

Hér má síðan sjá það í rauntíma hvernig snjóboltarnir lentu í fésinu á þátttakendunum.

Heimild: A+ News & Stories

Tengdar greinar:

Glitrandi snjókristallar í nærmynd – þá og nú

Konur og karlar garga yfir sig af hræðsu út af snjókarli

Allt á kafi í snjó – vandræðalegasta góðverk dagsins

 

SHARE