Stefnumót hönnunarnema við Skógræktarfélag Reykjavíkur – Myndir

"Gone baking" Björk Gunnbjörnsdóttir

Rendez-wood? er einstaklega skemmtileg sýningaröð á verkum þriðja árs nema í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands.

Titill verkefnisins Rendez-wood? er tilkomið af orðinu „rendezvous” sem þýðir stefnumót og á það vel við því verkefnið var unnið í samvinnu við Skógræktarfélag Reykjavíkur og gekk út á að sjá möguleika og nýtingu á íslenskum við í framleiðslu hér á landi. Eins og fram kemur á heimasíðu Listaháskóla Íslands var Ísland án skógar í margar aldir eftir að kjarr og birkiskógar eyddust af völdum landnámsmanna. Í dag er skógrækt þó komin vel á veg og fleiri tré eru gróðursett á ári miðað við höfðatölu þjóðar, en á nokkrum öðrum stað í heiminum. Því er spáð á komandi áratugum muni Ísland öðlast sjálfbærni í viðarframleiðslu og er því brýnt að hefja rannsókn á íslenskum við og möguleikunum hans. Verkefni nemendanna eiga það öll sameiginlegt að vera innblásin af krafti íslenskrar náttúru ásamt því að vera unnin á frumstæðan og einfaldan máta þar sem einblínt er á þörf nútímamannsins til þess að tengjast náttúrunni á ný.

Þeir nemendur sem tóku þátt í verkefninu eru: Anna Guðmundsdóttir, Katrín Magnúsdóttir, Thelma Hrund Benediktsdóttir, Ágústa Sveinsdóttir, Búi Bjarmar Aðalsteinsson, Sigurjón Axelsson og Björk Gunnbjörnsdóttir.
Kennarar verkefnisins voru: Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Dögg Guðmundsdóttir og Hafsteinn Júlíusson.
Fagstjóri í vöruhönnun er Garðar Eyjólfsson.

Fyrir áhugasama til að fræðast meira um einstök verk nemanda getið þið smellt á aðgengilega heimasíðu þeirra um verkefnið sem innihledur m.a.  kynningarvídeó af verkefnum hvers og eins.

SHARE