Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember

Maímánuður kemur eins og ferskur andvari um sál þína kæri Bogmaður. Sjóndeildarhringur þinn er að víkka og þú skalt nýta þetta tækifæri til að ferðast og læra eitthvað nýtt. Mennt er máttur og þú elskar að kanna nýjar slóðir. Um miðjan mánuð fer allt að snúast um samskipti og rómantíkin svífur yfir vötnum og núverandi tengsl munu dýpka svo um munar. Þú munt þurfa að skipuleggja starfið þitt og setja þér markmið.

Þú finnur fyrir aukinni þrautseigju og þolinmæði sem leiðir til arðbærra tækifæra. Passaðu samt að eyða ekki um efni fram og kaupa ekki hluti af einskærri hvatvísi því það gæti valdið óstöðugleika í fjármálastöðunni.