Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Krabbinn

Krabbinn
22. júní — 22. júlí

Kæri Krabbi. Maímánuður verður mánuður tilfinningalegrar dýptar og sjálfskoðunar og þú ert að vaxa andlega. Þú munt styrkja tilfinningabönd og fjölskyldutengsl. Það er allt í lagi að eiga sér drauma og ekkert er meitlað í stein. Þú ert frábær vinur en vinatengsl verða þér einstaklega mikilvægt í þessum mánuði.

Vertu með heilsuna í fyrirrúmi og fylgstu með minnstu merkjum um kulnun. Ekki hika við að leita til þeirra sem standa þér næst ef þú þarft á stuðningi að halda og vertu í kringum fólk sem skilur þig og lyftir þér upp. Saman komist þið í gegnum hindranirnar og ykkur verður það ljóst að það, „að tilheyra“ er stundum það eina sem þarf. Einangrun getur gert sálina veika því okkur er ekki ætlað að erfiða og fagna einsömul.