Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Ljónið

Ljónið
23. júlí — 22. ágúst

Kæra Ljón. Maí mánuður verður mánuðurinn þar sem lífskraftur þinn og drifkraftur verður í hámarki og forystuhæfileikar þínir og sköpunargáfa fær að njóta sín. Það gengur vel í vinnumálunum hjá þér og þú ert að vinna þig upp á við og það opnast fyrir þér ný tækifæri. Hafðu hjartað þitt opið og ekki gleyma að rækta og hlúa að samböndum þínum, sem og að stofna til nýrra sambanda.

Sköpun er þinn ofurkraftur svo þú skalt nota hann. Það hljómar kannski eins og einhver klisja, en árangur snýst ekki bara um áfangastaðinn heldur um að njóta ferðalagsins, en þú átt það til að gleyma því. Einhleypu Ljónin geta hugsanlega fundið ástina og Ljónin sem eru í sambandi finna dýpri tengingu í ástarsamböndum.