Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Meyjan

Meyjan
23. ágúst — 22. september

Það verða einhverjar miklar framfarir á ýmsum sviðum lífs þíns í maí kæra Meyja. Þú munt eiga auðvelt með samskipti og ganga vel með hverskyns viðskipti. Þú hefur gott auga fyrir smáatriðum og það mun reynast þér afar vel í vinnunni um þessar mundir. Þú munt þó þurfa að endurmeta einhver persónuleg sambönd sem þú átt, hvort sem það er að endurvekja gömul kynni eða að laga sambönd sem eru uppfull af spennu.

Þegar kemur að heilsunni er mjög mikilvægt að þú stundir streitulosandi líkamsrækt, jóga, gönguferðir eða annað slík. Farðu varlega í eyðslu á peningum en það eru bjartari tímar framundan þegar kemur að peningamálunum.