Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Maímánuður verður mánuður tileinkaður gnægðum og persónulegum vexti hjá þér kæra Naut. Þú þráir stöðugleika og ert að vinna með að styrkja sjálfsmyndina þína. Leggðu áherslu á markmiðin þín, því maí er góður mánuður fyrir þig, bæði persónulega og í atvinnulífinu, því sjarminn þinn er meiri en vanalega. Þú ert að fara að ná fjárhagslegu jafnvægi en til þess þarftu að hafa hemil á eyðslunni þinni.

Um miðjan eiga samböndin þín hug þinn allan og þú íhugar hvort þessi sambönd séu að vaxa eða standa í stað. Það verður einhver þroski hjá þér í því hvernig þú tekst á við tilfinningar. Ástarmálin ganga vel og þú skalt njóta þess og nándarinnar sem þú upplifir. Passaðu að taka ekki ákvarðanir í hvatvísi.