Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Það verður einhverskonar umbreytandi orka í maí hjá þér kæri Sporðdreki. Taktu við breytingum og fagnaðu þeim. Losaðu þig við það sem þjónar þér ekki lengur og uppgötvaðu styrkleika sem þú hefur ekki veitt athygli fyrr en nú. Þú munt upplifa mikinn persónulegan þroska og þú munt stunda áhugamál þín af kappi.

Þú finnur fyrir miklum metnaði, sérstaklega þegar kemur að vinnutengdum málum. Þér gengur vel í fjármálunum og þú getur þakkað það góðu fjárhagslegu innsæi. Samböndin þín munu þurfa mikla athygli og það kann að vera að þú þurfir að endurhugsa ákveðin sambönd og/eða samskipti. Tjáðu þig hreinskilnislega og segðu hvað þú vilt og þarft til að forðast allan misskilning við ástvini þína. Stundaðu einhverskonar líkamsrækt og ekki gleyma að hugsa um andlegu heilsuna og stundaðu reglulega hugleiðslu.