Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Steingeitin

Steingeitin
22. desember — 19. janúar

Þú munt hugsa mikið um grunnþarfir þínar í maí kæra Steingeit. Hvort sem það snýst um heimili þitt, fjölskylduna eða tilfinningalega vellíðan. Þú ert mjög vinnusöm/samur og gerir þér grein fyrir að þú þarft að leysa úr nokkrum áríðandi málum fyrir sumarið. Stöðugleiki er þér allt!
Ef þér finnst eins og áhugamál þín séu ekki að gefa þér það sem þau gáfu þér áður, er kominn tími til að breyta um áhugamál.

Þú ÞARFT ekki á neinum að halda en það er nauðsynlegt að hlúa að gleðinni í samböndum og nánum tengslum. Athugaðu hvað það er í raun og veru sem gefur þér fyllingu í lífið þitt og leyfðu þér að gera stundum eitthvað skemmtilegt en ekki bara það sem er skynsamlegt.