Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Vatnsberinn

Vatnsberinn
20. janúar — 18. febrúar

Kæri Vatnsberi, maí 2024 kallar á að þú virkir sköpunargáfu þína og leyfir þér að skoða óþekkt mið. Sjónarmið þín munu breytast og það munu kvikna hjá þér nýstárlegar hugmyndir. Taktu þessum hugmyndum fagnandi og deildu þeim því það gæti leitt til spennandi samstarfs.

Passaðu að þú takir ábyrgð í samböndum og að það sé fullkomið jafnvægi í þeim. Það geta orðið einhverskonar tafir í persónulegum samböndum, engin áföll, en það gætu orðið bið á betrumbætum á heimilinu. Hlúðu að heilsu þinni og daglegum venjum og mundu að hlúa að heilsu þinni jafn vel og frumlegum verkefnum þínum. Þú gætir farið of geyst í fjárhagslega eyðslu en treystu á getu þína til að passa upp á peningana þína. Það verður margt að gerast í lok mánaðarins og þú skalt taka þátt og mæta á samkomur og víkka út tengslanetið þitt.