Stjörnuspá fyrir maí 2024 – Vogin

Vogin
23. september — 22. október

Þegar þú hefur á annað borð gert upp hug þinn, kæra Vog, er ekkert sem fær haggað þér. Þú munt taka ákvörðun um eitthvað mikilvægt í maí sem hefur lengi verið í huganum þínum. Það er ekkert smá þreytandi að vera með hugann fullan af hugsunum allan sólarhringinn, ekki satt? Þess vegna verður það léttir fyrir þig að taka ákvörðun. Notaðu röddina þína og talaðu frá hjartanu og ekki leyfa þér að fyllast af gremju og þetta á sérstaklega við um samskipti við maka þinn. Þið verðið að geta talað um öll erfiðu málin líka, hvort sem það eru peningar, samskipti, uppeldi eða bara hvað sem er.

Þessi mánuður snýst mjög mikið um að finna sátt og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Ástarmálin verða á góðum stað og þú finnur fyrir nánd.