Þakíbúð á Laugaveginum

Þessi fallega þakíbúð eru 169,3 fm og er ofarlega á Laugaveginum.  Íbúðin sem um ræðir er í sérklassa þar sem ekkert hefur verið til sparað varðandi búnað og innréttingar.   

 

Þegar komið er inn úr stigagangi er gengið inn í gang sem tengir herbergi og alrými saman, til vinstri eru herbergin en ef gengið er til hægri inn eftir ganginum er eldhús á vinstri hönd og borðstofa og stofa þar inn af.

lauga3

Eldhús er búið vönduðum hnotuinnréttingum og eyja með granítborðplötu skilur að eldhús og borðstofu.

Borðstofan er björt og rúmgóð og í miðju stofunnar er sérsmíðaður arinn.

lauga10

Gestasalerni er á vinstri hönd ef gengið er inn eftir ganginum, smekklega innréttað með flísum á gólfi og veggjum og hefur á að skipa salerni og sturtuklefa.  Á ganginum fyrir framan salernið er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, allt innifelt inn í sérhannaða skápa.

lauga21

Svefnherbergið er bjart, afar vel skápum búið og úr því er útgengt út á suður svalir. Hjónaherbergið er í norðaustur horni hússins, inn af því er gott fataherbergi og rúmgott og vandað baðherbergi.

Smellið á fyrstu myndina til að skoða allt myndaalbúmið!

 

Allar upplýsingar um eignina veitir Héðinn B Ásbjörnsson lögg. fasteignasali 848 4806 eða á hedinn@fastborg.is 

 

 

Tengdar greinar: 

Fataherbergi: Draumur í dós

Einbýlishús í miðbænum á þremur hæðum

SHARE