Þetta er Jared Leto! – Trúir þú því?

Jared Leto er heldur betur að bæta á sig vöðvum þessa dagana fyrir hlutverk sitt í myndinni Suicide Squad. Hann tók þessa mynd af sér og skellti á Instagram í gær í þessum líka fína Superman-bol.

160668-original

Jared lét hafa það eftir sér um daginn að hann ætti mjög erfitt með að þyngjast en hann hefur þurft að borða á tveggja tíma fresti til þess að gera sig tilbúinn fyrir hlutverk sitt sem The Joker.

jaredletonightcrumbsterryrichardson (1)

Jared hefur oft gengið í gegnum miklar breytingar á líkama sínum fyrir hlutverk í bíómynd en árið 2000 þurfti Jared að svelta sig fyrir hlutverk sitt sem eiturlyfjaneytandi í myndinni Requiem for a Dream. Árið 2007  þyngdi hann sig um 27 kg fyrir myndina Chapter 27 og svo létti hann sig um tæp 14 kg fyrir bíómyndina Dallas Buyers Club. 

Jared í hlutverki dragdrottningarinnar
Jared í hlutverki dragdrottningarinnar í Dallas Buyers Club
SHARE