Þú getur borgað fyrir morgunkorn með ljósmynd af þér

Matvælaframleiðendur eru alltaf að leita nýrra leiða til að kynna vörur sínar. Næstu tvo daga munu gestir Kringlunnar geta greitt fyrir morgunkorn með Instagram-myndum. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi óvenjulega leið er farinn við markaðssetningu hér á landi, en Kelloggs stóð fyrir samskonar viðburði í Svíþjóð í sumar.

Instabud i svithjodTilgangurinn með framtakinu er að kynna breytta uppskrift að þessu vinsæla morgunkorni. Í tengslum við opnun búðarinnar var gerð könnun á notkun Íslendinga á samfélagsmiðlum. Leiddi hún í ljós að Instagram er næstvinsælasti samfélagsmiðill á Íslandi og að fleiri kjósa að nota Instagram til að birta myndir heldur en Facebook.

instashop i Kringlunni 2

Um er að ræða pop-up verslun þar sem gestir og gangandi geta greitt fyrir kassa af nýja morgunkorninu með því að taka mynd af sér við verslunina með kassa af Special K og birta hana á Instagram, merkta #nyttspecialk. Instabúð Kelloggs Special K verður opin í Kringlunni í dag, föstudag, á milli kl.11:30 og 19:00 og á morgun laugardag á milli kl.11:30 og 18:00.

SHARE