Tómatpasta með kjúkling og brokkolí

Þetta æðislega pasta er frá Freistingum Thelmu. 

Tómatpasta með kjúkling og brokkolí

Innihald

3-4 kjúklingabringur

500 g tagliatelle nests

2 msk ólífuolía

2 stk laukar

1 stk hvítlaukur

1 dós Tomato & Ricotta pastasósa

2 dl matreiðslurjómi

20 g parmesanostur

2 msk Chilli & Garlic pesto

Salt, pipar og chillipipar

1 haus af brokkolí

 

Aðferð

Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu. Gott er að setja smá salt og olíu saman við vatnið á meðan pastað sýður. Setjið 2 msk ólífuolíu á pönnu og hitið, skerið laukana smátt niður og léttsteikið á pönnunni. Rífið því næst hvítlaukinn og setjið á pönnuna. Passið að hræra vel svo að hvítlaukurinn brenni ekki. Hellið sósunni saman við og látið suðu koma upp, setjið chilli pesto og parmesan ost saman við og hrærið vel. Hellið rjómanum saman við og hrærið. Kryddið með salti og pipar eftir smekk. Fyrir þá sem vilja hafa pastað í sterkari kantinum geta bætt við 1 msk af chilli pesto.

Þegar pastað hefur lokið suðutíma, hellið þá vatninu af og setjið saman við sósuna, hrærið vel svo sósan þekji allt pastað.

Setjið 1-2 msk af olíu á kjúklingabringurnar og kryddið með salti, pipar og chilli-pipar eftir smekk. Grillið kjúklingabringurnar eða steikið á pönnu. Á meðan kjúklingurinn er að eldast steikið þá brokkolíið. Setjið olive olíu á pönnu og skerið brokkolíið niður og létt steikið á pönnunni ásamt salti. Brokkolíið á að vera stökkt svo passið ykkur á því að steikja það ekki of lengi. Blandið brokkolíinu saman við pastað.

Setjið pastað í skál, skerið kjúklinginn niður í sneiðar og setjið ofan á. Berið fram með parmesan osti, hvítlauksbrauði og/eða salati.

 

Freistingar Thelmu á Facebook. 

 

SHARE