Tortillur með kjúklingi, mangó salsa og lárperusósu – Uppskrift

  • Efni
  • Mangó Salsa:
  • 2 þroskuð mangó, skræld og skorin í bita
  • 2 msk. rauðlaukur, saxaður smátt
  • 1 lítill jalapenó pipar, fræ hreinsuð burtu, saxaður smátt
  • 1/2 bolli kóríander, saxað
  • Safi úr hálfri límónu
  •  
  • Aðferð: blandið öllu þessu saman og þá er komið salsa!
  •  
  • Sósa úr lárperu (avókadó)
  • 2 vorlaukar
  • 1 þroskuð lárpera
  • 1 bolli spínat og klettasalad, blandað
  • 1/2 bolli kóríander
  • 3 hvítlauksrif
  • Safi úr 1/2 límónu
  • salt og pipar
  • 3/4- 1 bolli vatn
  • Aðferð: Látið allt efnið í blandara og maukið og þá er sósan tilbúin!

Kjúklingur með kókos

  •  1 bolli kókosmjólk
  • 2 stórar kjúklingabringur, skornar í ræmur
  • 2- 3 bollar kókosflögur
  • 8 heilhveiti tortillur
  •  
  • Aðferð: steikið bringurnar á pönnu þar til kjötið er gegnsteikt, hellið kókosmjólkinni yfir og bætið svo kókosflögunum út í. Notið salt og pipar að smekk.
  • Velgið tortillur, látið kjúkling á hverja tortillu, lárperusósuna á kjúklinginn og salsað ofan á allt.  Njótið vel!

SHARE