
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum þar sem tekin var niður vefsíða, Kidflix, en á henni var að finna barnaníðsefni. Aðgerðin náði til á fjórða tugs landa, en fyrir henni fóru lögregluyfirvöld í Bæjaralandi í Þýskalandi með fulltingi Europol. Vegna þessa voru tveir menn handteknir á höfuðborgarsvæðinu, en ráðist var í húsleit í híbýlum þeirra beggja og lagt hald á búnað í þágu rannsóknarinnar.
Nálægt tvær milljónir notenda höfðu skráð sig inn á umrædda síðu undanfarin þrjú ár, en á henni var að finna um 72 þúsund myndbönd þegar lögreglan lét til skarar skríða og lokaði síðunni.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Europol: Global crackdown on Kidflix, a major child sexual exploitation platform with almost two million users | Europol

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.