Tvennar svalir í þessari björtu og fallegu íbúð

Þessi smekklega og flotta íbúð er á efstu hæð í fjölbýli í Hraunbæ. Hún er rúmir 116 fermetrar, með tvennum svölum og herbergi í sameign sem er með aðgengi að baðherbergi.

79e4fd8bfa8dc3953c448c98eec01aab-large

 

 

Í íbúðinni eru 4 herbergi. Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi og hol tengir svo saman öll rými íbúðarinnar.

77bada764da35e50022a280742eece86-large

Íbúðin er vel skipulögð og öll herbergi eru parketlögð. Það eru 2 rúmgóð barnaherbergi og hjónaherbergið er einnig mjög rúmgott. Þetta herbergi var áður hjónaherbergi en er núna barnaherbergi hjá núverandi eigendum. Aðrar af tveimur svölum eru í þessu herbergi.

2fd5dff2bf9b8e672ab07ea41e8a0b99-large

 

4c2542ba86d14f8e068befa9a18a38c1-large

 

 

66bf70ed977383266ca47e86d12d20b2-large

Sjá einnig: Glæsileg íbúð í Hraunbæ – Aukaherbergi í kjallara sem hægt er að leigja út

Stofan er björt og hægt er að fara út á svalir sem snúa í suður. Hægt er að nota rýmið sem stofu og borðstofu en þannig er það nýtt í dag.

e3a9f3351698c84b0e561cc38c70e902-large

 

 

Á baðherberginu er baðkar og aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara. Þvottahús er samt í sameigninni.

Sjáið allar myndir hér fyrir neðan:

 

Þess má geta að húsið verður opið í dag milli 17:00 og 17:30 og hvetjum við áhugasama að kíkja á eignina.

Allar frekari upplýsingar um eignina veita Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@fastborg.is eða Héðinn B Ásbjörnsson lögg. fasteignasali 848-4806 eða á hedinn@fastborg.is

SHARE