Ung kona stelur úlpum á Selfossi – Fannst eftir öryggismyndavél

Samkvæmt dfs.is var þremur rándýrum úlpum  stolið á föstudaginn úr fatahengi nemenda Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi í anddyri skólans en þær hafa núna komið í leitirnar.

Lögreglan fékk ábendingar frá borgurum eftir að mynd af ungri konu, sem tók úlpurnar birtist, í netmiðlunum DFS.is og Sunnlennska.is. Lögreglumenn á vakt könnuðu þær vísbendingar sem bárust og unnu úr þeim.  Ítarleg rannsókn þeirra leiddi svo til þess að grunur féll á tvítuga konu með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu, sem ekki tengist skólanum á neinn hátt.  Hjá konunnu fundust tvær úlpur og sú þriðja var komin í sölu en náðist til baka.  Samtals verðmæti úlpnanna þriggja úr verslun er um 130 þúsund krónur.  Lögregla vill koma á framfæri þakklæti til forráðamanna FSU, sem gerðu allt sem til þurfti,  og þeim einstaklingum sem komu með upplýsingar eftir að leitað var eftir þeim á netmiðlum.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here