Uppþvottavélin: Þetta verður þú að þrífa einu sinni í mánuði

Það eru alls ekki allir sem vita þetta en það er eitt sem þú verður að þrífa í uppþvottavélinni þinni, í það minnsta einu sinni í mánuði. Uppþvottavélin heldur sér að mestu hreinni að innan sjálf en ef þessi hlutur er ekki hreinn verður leirtauið aldrei fullkomlega hreint. Um er að ræða síuna í botni uppþvottavélarinnar.

Sjá einnig: Allt sem þú þarft að vita um uppþvottavélina

TikTok-arinn @jettsetfarmhouse mælir með því að þrífa þetta eftir hvern þvott en það er nú alveg óþarfi kannski á venjulegu heimili þar sem leirtauið er skolað áður en það er sett í vélina. Við mælum með því að gera þetta á 3-4 vikna fresti. Ef þið hafið aldrei gert þetta, ekki láta þér bregða þegar þú kíkir á síuna í fyrsta skipti.

Sían er yfirleitt skrúfuð upp með einu handtaki. Þú rennir neðri skúffunni út og getur teygt þig í hana og skrúfað hana lausa. Hún getur verið mjög fitug og full af allskonar matarbitum og ógeði. Mér finnst besta að setja vel af uppþvottalegi í skál og fylla hana af vatni og leyfa henni að liggja aðeins í bleyti. Taka hana svo uppúr og skola með miklum krafti í eldhúsvaskinum og nota tannbursta til að skrúbba erfiðustu fletina.

Sjá einnig: 15 hlutir sem þú vissir ekki að mættu fara í uppþvottavél

Hér er svo rosalega fínt myndband sem útskýrir þetta skref fyrir skref.

SHARE