
Hollywoodleikarinn Val Kilmer lést á heimili sínu í Los Angeles í gær en dóttir hans, Mercedes staðfesti það við New York Times.

Val lést úr lungnabólgu. Hann greindist með krabbamein í hálsi árið 2015 og barðist við það í 6 ár og var laus við krabbameinið árið 2021. Eftir krabbameinsmeðferðirnar varð rödd Val fyrir varanlegum skaða og varð aldrei eins aftur.

Val lét eftir sig dótturina Mercedes (33) og soninn Jack (29).

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














