Við sjáumst og heyrumst! – Það er óvitlaust!

Eins og ég hef sagt áður þá er ég frekar mikill íslenskulúði og það getur valdið mér smá gremju þegar ég heyri fólk fara illa með málið okkar. Eitt sem ég hef heyrt í mörg ár og hefur alltaf verið pirrandi, það er þegar fólk segir „sjáustum“ og „heyrustum“. Hvað er það eiginlega??!! Hver byrjaði eiginlega á þessu? Fyrir utan hvað þetta hljómar asnalega þá er þetta mun óþjálla en að segja einfaldlega bara „sjáumst“ og „heyrumst“, finnst ykkur ekki?

Annað sem ég verð að koma frá mér er að ótrúlegasta fólk segir mjög oft „Já það er nú ekkert svo óvitlaust“ og á þá við að það sé sniðugt. Hinsvegar ertu með þessari setningu að segja að hluturinn sé „vitlaus“. Nær væri að segja „Já það er ekki vitlaust“ eða „já það er óvitlaust“. Ef maður segir að eitthvað sé ekki óvitlaust þá er það vitlaust.

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here