5 sexí aðferðir til að nota mat í svefnherberginu

Matur getur verið sexý og ef að þú notar hann á réttan hátt, getur hann leitt til ógleymanlegrar stundar í rúminu.
Hér eru 5 uppáhalds til að nota.

1) Þeyttur rjómi.
Sennilega mesta klisjan en við skorum á þig að finna mann sem er ekki til í að sjá þig í rjómabikiní. Þegar hann er búinn að sleikja og njóta þín, settu smá rjóma á typpið á honum og sleiktu hann af rólega og tælandi.

the-whipped-cream-bikini

2) Nammi hálsfesti.
Vertu með eina slíka um hálsinn eða á lærinu og láttu hann bíta eitt nammi af í einu. Þetta mun æsa þig upp!

3) Bráðið súkkulaði
Settu súkkulaðistykki í örbylgjuna í 10-15 sekúndur þannig að það sé mjúkt og hlýtt en ekki alveg bráðið. Notið súkkulaðið til að teikna á hvort annað. Frábær leið til að sýna honum hvar þú vilt láta snerta þig og öfugt.

4) Popp
Ef að nammi er ekki fyrir þig þá má prófa poppið. Láttu það kólna og settu það svo hér og þar á líkama hans. Poppið er auðvelt að grípa bara með tungunni og það að þú rétt snertir hann mun gera hann óðan.

5) Ísmolar.
Settu ísmola í munninn og notaðu hann til að draga ísslóð yfir líkama hans. Þegar þú ert búin láttu hann gera það sama við þig eða gerðu það sjálf með hendinni og láttu hann elta með tungunni.

Ekki gera of mikið. Ekki maka hann út í hunangi og verða svo veik eftir að reyna að sleikja það allt af. Ef að þér er annt um rúmfötin þín notaðu þá þau sem mega eyðileggjast eða handklæði. Forðastu að setja mat á kynfærin þar sem að þau geta valdið kláða og/eða sýkingu. Matnum er ætlað að starta kynlífinu ekki að vera aðalviðburðurinn. Matur er líka ágætis afsökun fyrir töku tvö þegar þið þurfið í sturtu til að þrífa ykkur!

 

SHARE