
Þvagfærasýking er sýking sem kemur í þvagblöðruna og getur farið upp í nýrun. Einkennin eru sársauki við þvaglát, tíð þvaglát og í sumum tilfellum hita, gruggugt þvag og þvagið verður skrýtið á litinn. Þessi sýking er algengari hjá konum því þvagrásin er styttri en hjá körlum og þess vegna eiga bakteríurnar auðveldara aðgengi að blöðrunni.
Hér eru nokkrar leiðir til að koma í veg fyrir þvagfærasýkingu.
1. Þurrkaðu framan frá og aftur á bak
Það er mjög mikilvægt að skeina sig rétt til að varna bakteríum frá því að komast í þvagrásina. Þurrkaðu aftan frá, þ.e.a.s. frá kynfærum og aftur. Ekki að framan og upp. Þá er hætta á því að sýklar frá endaþarmi endi í þvagrásinni.
2. Forðastu kvennavörur sem erta
3. Drekktu vatn og farðu oft á salernið
Það er mjög mikilvægt að drekka alltaf mikið vatn, hvort sem þú sért gjörn á að fá sýkingar eða ekki. Mælt er með því að drekka að minnsta kosti 2 lítra af vatni á dag.
Því meira sem þú drekkur af vatni því tærara verður þvagið. Þú pissar oftar og bakteríurnar skolast fljjótt út og þvagrásin er hreinni.
Sjá einnig: Blöðrubólga – Þvagfærasýking
4. Hugsaðu vel um mjóbakið
Það kann að hljóma ótrúlegt en álag á mjóbakið getur haft áhrif á taugar í bakinu sem tengjast þvagrásinu. Farðu því vel með bakið þitt og ekki ganga allt of mikið í háum hælum því þeir setja álag á mjóbakið.
Gerðu styrktaræfingar sem styrkja bakið og kviðvöðvana og það mun vinna þér í hag.
5. Skiptu oft um tíðatappa
6. Forðastu að fá harðlífi
Harðlífi eykur líkurnar á þvagværasýkingu samkvæmt National Health Service. Ef þú ert með harðlífi, safnast hægðir fyrir í þörmum sem valda því að þrýstingur myndast á þvagblöðruna.
Það sem hægt er að gera til að fá síður harðlífi er að borða vel af trefjum, nota hægðamýkjandi efni og drekka mikið af vatni.
7. Drekktu trönuberjasafa
8. Pissaðu fyrir og eftir kynlíf
Við það að stunda kynlíf geta “smitast” bakteríur frá endaþarmi að leggöngum og geta valdið þvagfærasýkingum samkvæmt WebMD.
9. Ekki vera í of þröngum buxum
Forðastu að vera í mjög þröngum buxum og eins er best að vera í nærbuxum úr bómull. Bómullin andar best og heldur kynfærum þínum þurrum. Nælon, til dæmis, heldur raka á þessu svæði sem eru kjöraðstæður fyrir bakteríur til að lifa í.
Heimildir: LittleThings.com

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














