Ben Affleck og Jennifer Lopez eru að hittast

Jennifer Lopez (51) og Ben Affleck (48) voru saman alla seinustu helgi samkvæmt slúðurmiðlinum TMZ. Þau héldu til í Montana og sáust keyra um svæðið.

Ben og Jennifer hittust fyrst árið 2002 þegar myndin Gigli en þá var Jennifer gift dansaranum Chris Judd. Þau skildu svo í júní 2002 og þá fór Jennifer að hitta Ben og Ben hafði beðið Jennifer áður en árið var á enda. Jennifer fékk risa demantshring sem metinn var á 2,5 milljónir dollara. Brúðkaupinu var hinsvegar aflýst 4 dögum áður en það átti að fara fram í september 2003 og hættu þau saman í janúar árið 2004.

Jennifer giftist Marc Anthony í júní 2004 og ári síðar giftist Ben Jennifer Garner.

SHARE