Brad Pitt fer í mál við Angelina Jolie

Brad Pitt segir að Angelina Jolie hafi farið á bakvið hann þegar hún seldi sinn hlut í vínekru sem þau áttu saman. Hún seldi hlutinn sinn til rússnesks auðjöfurs og nú er Brad að fara í mál við hana vegna þessa.

Sjá einnig: Fyrsta fyrirsætan hjá Victoria’s Secret með Downs heilkenni

Brad og Angelina keyptu vínekruna, sem er í Frakklandi, árið 2008 og Brad segist hafa eytt miklum fjármunum og tíma í vínekruna í gegnum árin. Hann segir að Angelina hafi jú borgað 40% af þeim 28,5 milljón dollurum sem þau keyptu vínekruna á, en hann hafi verið sá sem sá um að koma ekrunni á koppinn. Brad segir jafnframt að þau hafi verið sammála um að þau myndu hvorugt selja sinn hlut að vínekrunni án þess að hinn aðilinn myndi samþykkja það.

Það var svo í október að Brad komst að því að Angelina seldi rússneskum auðjöfri sinn hlut en sá maður á fyrirtæki sem heitir Tenute del Mondo sem er dótturfélag Stoli Group sem framleiðir til dæmis mikið af vodka. Brad segir að þessi maður hafi eyðilagt það sem hann var búinn að byggja upp á vínekrunni og hann hefði aldrei samþykkt að Angelina myndi selja honum hlutinn.

Heimildir: TMZ

SHARE