
Vanilluhringir eru algjört “must” á jólunum. Hér eru ekta danskir vanillu hringir með smá sítrónukeim……….oh þeir eru æðislegir.

Uppskrift:
- 230 gr. – ósaltað Smjör í stofuhita
- 100 gr. – Sykur
- 1 stk – Egg (stofuhita)
- 1 msk – Vanilludropar
- 1 msk – Rifinn sítrónubörkur
- 250 gr. – Hveiti
- 1/2 tsk – Matarsódi
- 1/2 tsk – gróft salt
- Smá sykur í skál
Aðferð:
Setjið mjúkt smjörið og sykur í hrærivél og hrærið vel saman eða þangað til að blandan er orðin mjúk og ljós. Bætið þá egginu og vanilludropunum og sítrónubörkinn í og hrærið vel saman.
Blandið svo þurrefnunum, hveiti, saltinu og matarsódanum og hrærið þar til allt er blandað vel saman. Hitið ofninn uppí 180 °C gráður. Takið svo degið og setið það í skömmtum í sprautupoka. Setjið smjörpappír á plötu eða á disk. Því næsti sprautið þið c.a. 3,5 cm lengju og myndið hring. Takið svo plötuna eða diskinn og setjið inní kæli,frysti eða bara úta svalir ef það er kalt. Látið hringina kólna í c.a 10-20 min eða þangað til að þeir eru orðnir það harðir að þið getið tekið þá léttilega upp án þess að þeir klessist. Veltið svo hverjum og einum uppúr sykri og setjið á smjörpappír á plötu. Bakið í c.a.14-18 min eða þar til að þeir eru orðnir gyltir á brúnunum.
Þegar þeir eru tilbúnir og teknir úr ofninum er best að leyfa þeirm að kólna á ofngrind.





Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














