
Maður er alltaf að reyna að finna nýjar smákökuuppskriftir fyrir jólin og rakst ég á þessa geggjuðu Dúbaí súkkulaði smáköku uppskrift. Við elskum Dúbaí súkkulaði á þessu heimili ásmat örugglega 90% af þjóðinni. Þið verðið að prófa hana!!!

Uppskrift:
Fylling:
- 200 gr – Pistasíu rjómi (sjá uppskrift https://www.hun.is/pistasiurjomi/ )
- 50 gr. – Kataifi ristað ( Keypti hjá Innnes)
Kakan sjálf:
- 25 gr. – Bökunarkakó
- 30 gr. – Ósaltað smjör
- 1 msk. – Avocado olía
- 100 gr – Sykur
- 70 gr – ljós púðursykur
- 1 stk – stórt egg
- 3/4 tsk – vanilludropar/Extract
- 200 gr – hveiti
- 1/2 tsk – matarsódi
- 1/4 tsk – Lyftiduft
- 1/2 tsk – salt
Á toppinn:
- 70 gr – Súkkulaði (Má bæði vera ljóst eða dökkt)
- 2 msk- Pistasíuhnetur
Aðferð:
Pistasíu rjómi er svakalega dýr þannig að ég ákvað að gera hann bara sjálf. Hér getið þið séð uppskriftina https://www.hun.is/pistasiurjomi/ . Svo getur verið svolítið erfitt að finna hráefnið Kataifi en ég fann það hjá hjá Innnes og kostaði það ekki nema rúmlega 1500 kr. (meira en nóg). En þú færð það óristað þannig að ég dreifði því a ofnplötu og bakaði á 180 gráðum í bara c.a. 4-5 min. Þá þurrkasta það alveg upp og verður svona “Crispy”.
Þið blandið rjómanum og ristaða Kataifi í skál með sleikju. Svo takið þið matsekið og myndið kúlur á smjörpappír. Setjið þær síðan í kæli eða bara út ef það er kalt.



Því næst stillið þið ofninn á 175 gráður. Bræðið smjörið og blandið saman við það Kakóið og olíunni og hrærið vel saman. Látið kólna aðeins eða þar til blandan er ekki það heit að ekkert mál sé að setja fingurinn ofan í hana. Bætið þá við sykrunum og egginu og vanillunni og hrærið vel saman.
Blandið vel saman hveitinu, matarsódanum, lyftiduftinu og saltinu í aðara skál. Bætið svo smjörblöndunni úti hveitiblönduna og hnoðið saman þar til deigið er orðið nokkuð þykkt og vel blandað saman.(svolítið eins og piparkökudeig)
Búið til kúlur c.a. 2 matskeiðar og setjið á bökunarplötu með smjörpapp



Náið svo í fyllinguna úr kælinu. Þið myndið svo dæld í kúlurnar með þumlinum og setjið eina kúli af fyllingunni í dældina og pakkið henni svo inn með deiginu. Raðið þeim svo á smjörpappír með góðu bili á milli. Allavegna 5 cm. Bakið svo í c.a. 10 min. Þegar þið takið kökurnar úr ofninum þá eru þær ennþá frekar kúlulaga. Nótið þá botn af glasi eða krukku og þrýstið á kökurnar þannig að þær fletjast úr. Leyfið þeim svo að kólna vel þar sem þær eru mjög viðkvæmar á meðan þær eru ennþá heitar.




Þegar kökurnar eru orðnar kaldar er flott að bryðjar pistasíu hnetur og bræða súkkulaði til þess að skreyta þær. Þetta er ekki nausynlegt en gerir þær samt ennþá girnilegri. Verði ykkur að góðu!!!


Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














