Feður finna spörk barnsins í móðurkviði – fallegt!

Fyrir feðradagsauglýsingu sína leyfði Huggies bleyjufyrirtækið nokkrum verðandi feðrum að upplifa að hluta hvernig það er að vera ófrísk.  Fyrirtækið Kimberly-Clark hannaði og bjó til meðgöngubelti fyrir pör sem áttu von á barni , beltið sem móðirin bar sá um að færa hreyfingar barnsins í móðurkviði  yfir á belti sem faðirinn bar þannig að faðirinn gat einnig “fundið” barnið sparka.

Beltin sem eru eins og er ekki til sölu voru útbúin eingöngu fyrir Huggies auglýsinguna sem sýnd var í Suður Ameríku og í henni sjást raunveruleg pör prófa beltin á spítalanum í Buenos Aires. Beltin eru með rafeindaskynjurum og LED ljósum.

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá viðbrögð nokkurra feðra.

[youtube width=”600″ height=”325″ video_id=”KhkRLG7khWg”]

SHARE