Gamaldags súkkulaðikaka með oreo- og vanillusmjörkremi

Vááá hvað þessi er girnilega frá Freistingarthelmu

Gamaldags súkkulaðikaka með Oreo- og vanillusmjörkremi

Undirbúningstími 1 klst. bökunartími 30 mín.

Innihald

170 g smjör við stofuhita

380 g púðursykur

2 tsk. vanilludropar

3 egg

240 g hveiti

1 tsk. lyftiduft

1 ½ tsk matarsódi

80 g dökkt kakó

3 ½ dl. rjómi

5  msk  majones

3  tsk sterkt kaffi

Aðferð

Hrærið smjör og púðursykur vel saman þangað til blandan verður ljós og létt, bætið svo vanilludropum saman við.

Bætið eggjum saman við, einu í einu og hrærið vel á milli.  Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda og kakói vel saman og bætið því saman við blönduna jafnt og þétt ásamt rjómanum. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.

Bætið majonesi og kaffi saman við og hrærið með sleif þar til allt hefur blandast saman.

Setjið deigið í tvö 20 cm form eða þrjú minni. Bakið í 30 mín. við 180 gráðu hita, passið að baka kökuna ekki of mikið því hún á að vera mjög mjúk og örlítið blaut. Kælið kökurnar alveg. Skerið botnana í tvennt og setjið oreokrem á milli.

Oreo Krem

125 g. smjör við stofuhita

250 g. flórsykur

2 tsk. vanilludropar

2 msk. rjómi (eða mjólk)

8 stk. oreo kexkökur muldar smátt.

Hrærið smjörið og flórsykurinn vel saman. Bættið við vanilludropunum og rjómanum saman við og hrærið saman. Bætið muldum oreo kökum saman við og hrærið vel saman við. Smyrjið kreminu á milli allra botnanna. Setjið oreo krem á milli botnanna.

Vanillusmjörkrem

250 g. smjör við stofuhita

500 g. flórsykur

4 tsk. vanilludropar

4 msk. rjómi

Hrærið smjör og flórsykru vel saman.

Bætið vanilludropum ásamt rjómanum saman við og hrærið þar til kremið er orðið ljóst og vel blandað saman.

Smyrjið kreminu utan um kökuna og skreytið af vild. Einnig er fallegt að skreyta með litlu oreo kökum eða stórum skornum í tvennt eða í heilu lagi. Geymið kökuna inn í ísskáp þar til hún er borin fram.

SHARE