Hollt og gott gúllas

Það er svo gott að fá gott gúllas. Hér er ein geggjuð uppskrift frá Eldhússystrum. IMG_8298

 

IMG_8299

 Nautagúllas í tómatsósu

ca 400 gr Gúllas
2 dósir af niðursoðnum tómötum
4-6 meðalstórar kartöflur
1/2 – 1 sæt kartafla
gulrætur eftir smekk
1 tsk tómatpúrra
1-2 teningar kjötkraftur
Paprikuduft eða krydd að eginn vali
Grænmeti að vild (t.d. baunabelgir eða brokkolí)
salt
pipar
olía til að steikingar

Ég nota steypujárnspott þegar ég elda svona rétti en það er ekki nauðsynlegt. Ef ekki er til slíkur pottur er hægt að steikja kjötið á pönnu og færa það síðan yfir í pott, ef þetta er gert þarf að setja smá vatn á pönnuna og skrapa upp það sem festist við pönnuna og hella yfir í pottinn með kjötinu, þar sem mikið og gott bragð tapast ef það er ekki haft með.

Steikið gúllaskjötið upp úr smá olíu. Látið bitana brúnast, saltið og piprið eftir smekk. Þegar kjötið er búið að brúnast er tómötunumm hellt útá. Kryddið með kjötkraftinum, paprikunni og tómatpúrrunni. Leyfið sósunni að malla í góðan klukkutíma ( því minni sem kjötbitarnir eru því minni tíma þarf kjötið). Skerið niður kartöflur og gulrætur og bætið saman við, látið malla áfram í klukkutíma eða þar til gulræturnar og kartöflurnar eru tilbúnar. Það skiptir máli að gefa kjötin nógu langan tíma til að það  verði mjúkt og gott.

Ef þið viljið hafa meira grænmeti með þá er um að gera að sjóða svolítið frosið grænmeti og bera það fram með kjötinu.

IMG_8310

SHARE