Naomi Campbell sýnir dóttur sína í fyrsta sinn

Naomi Campbell (51) eignaðist dóttur í maí 2021 og kemur fram í fyrsta skipti með hana, á forsíðu Vogue. Naomi klæðist svörtum topp og svörtum buxum og heldur dóttur sinni þétt upp að sér.

Sjá einnig: Bræður hittast eftir 12 ára aðskilnað

Naomi hefur ekki talað mikið um vegferð sína sem móðir en hún deilir smá af reynslu sinni í Vogue. „Hún er góð stúlka. Hún sefur mjög vel, grætur eiginlega aldrei og mér er sagt að hún sé mjög vel á nótunum miðað við aldur. Hún er nýbyrjuð að vinka, sem er skemmtilegt. Hún hlær mikið og næstum farin að tala. Ég gæti trúað að hún gæti farið að ganga áður en hún byrjar að skríða og hún er komin með 6 tennur.“

SHARE