
Snillingarnir sem eru með síðuna Eldhússystur eru alltaf með flottar og girnilegar uppskriftir. Hér er ein svoleiðis.
Einföld piparkökuostakaka
200 gr keyptar piparkökur
100 gr smjör
300 gr rjómaostur
1 dl flórsykur
2,5 dl rjómi, þeyttur
Hindberjasulta
Aðferð
Myljið piparkökurnar, annað hvort í matvinnsluvél eða í höndunum. Bræðið smjörið og blandið saman við piparkökurnar.
Blandið saman rjómaostinum og flórsykrinum. Þeytið rjómann.
Setjið piparkökumylsnu í botn á skál eða glasi. Setjið rjómaostblöndu ofan á (ég setti ríflegar 2 msk, þetta fer allt eftir smekk). Setjið 1-2 msk af hindberjasultu ofan á og að lokum rjóma. Stráið smá piparkökumylsnu ofan á til skrauts.

Sjá einnig:
- Focaccia – Ítalskt brauð

- Súkkulaði bollakaka með hnetusmjörskremi

- Matarmiklar víetnamskar pönnukökur

- Mexíkóbaka með pepperóní

- Dúbaí súkkulaði smákökur

- Tom Hardy og pabbi hans skiptast á „pabbabröndurum“


Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














