Pönnupizza

Hinn heilagi pizzudagur er runninn upp og þá er góð hugmynd að smella einu “like-i” á Matarlyst setja í eina pönnupizzu.

Hráefni

6 ½ dl hveiti

½ bréf þurrger

1 tsk salt

½ tsk sykur

2½ dl ylvolgt vatn jafnvel örlítið meir ef blandan er þurr.

2 msk matarolía

Aðferð

Þurrefnum er blandað saman í hrærivélarskál blandað örlítið saman með króknum, olíu og 2½ dl af vatni er bætt út í þurrefnin látið vélina hnoða deigið saman ef deigið er þurrt bætið örlitlu meira vatni út í hnoðið í 3 mín þá ætti deigið að vera komið vel saman, látið deigið hefast undir klút/selló í u.þ.b 30 mín.

Skiptið deiginu í 6 hluta, fletjið út í pönnustærð sem er á við pönnukökupönnu, hitið olíu á pönnu leggið deigið á, látið sósu, álegg og ost á pizzuna sem hver og einn vill.

Bakið pizzuna að neðan á pönnunni passið að hafa ekki of háan hita svo hún brenni ekki botninn á að vera gullinn, setjið pizzuna á bökunnarplötu tvær á hverja plötu og því næst undir grillið í ofninum þar til pizzan verður gullinn brún að ofan og osturinn bráðin, fylgjast þarf með pizzunni og passa að hún brenni ekki.

Gott er að bera hvítlauks eða chili olíu fram með pizzunum. Og rifsberjahlaup með ostapizzu ef hún er útbúin.

Fyrir stóra fjölskyldu er gott að útbúa tvöfalda uppskrift, ef ekki er notað allt deigið er gott að móta deigið í kúlur, hæfilega stórar, setja í plastpoka og frysta, taka svo út næst þegar gera á pizzu.

SHARE