„Sorglegt að vera að monta sig af neyslu“

Óðinn Örn er 17 ára gamall aðstandandi sem hefur upplifað fíknisjúkdóminn í gegnum bræður sína en pabbi hans er alkóhólisti einnig sem hefur verið í bata frá því áður en Óðinn fæddist. Hann er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Það er von.


Óðinn talar opinskátt um það hvernig fíknisjúkdómur bróður hans hefur haft bein áhrif á líf hans og alla fjölskyldu þeirra. „Ég man fyrst eftir því þegar ég var svona fimm ára, þá heyri ég læti frammi þegar ég átti að vera sofnaður. Ég fór fram og sá bróður minn taka mömmu mína hálstaki.“ Hann segir að hann hafi ekki skilið allar aðstæðurnar á þessum aldri og hafi ekki hugsað meðvitað um þetta aftur fyrr en árið 2019, þá hafi það komið almennilega í ljós að bróðir hans væri kókaínfíkill eins og hann orðar það.
„Hann var komandi heim í fráhvörfum” segir Óðinn þegar hann lýsir hvernig ástandið var árið 2019, hann talar um að bróðir hans hafi verið reiður, erfiður og hafi ráðist á sig og aðra fjölskyldumeðlimi í geðshræringunum sem fylgdu fráhvörfunum.
Óðinn talar um að það sé minnistætt þegar bróðir hans fór í fyrstu innlögnina á Vogi, það hafi verið erfitt að sjá bróður sinn illa útlítandi, útkeyrðan, grannan og ræfilslegan: „Ég hélt að þetta væri bara búið eftir það.“

Sjá einnig: Vaknaði þrisvar í öndunarvél eftir ofbeldi

Þegar stóri bróðir flutti heim eftir meðferð þurfti hann að víkja og sofa á dýnu inni hjá mömmu og pabba því bróðir hans þurfti herbergið. Óðinn talar um að hafa oft liðið eins og „Palli einn í heiminum“ því líf foreldra hans snerist um bróður hans og sveiflurnar í kringum neysluna. „Mamma var auðvitað í meðvirkniskasti alltaf, gat ekki sótt mig í skólann því hún þurfti að hvíla sig vegna þess að þetta tók allt svo mikinn toll.“

Þegar Óðinn er spurður út í  það hvort hann hafi trú á að bróðir hans nái bata þá svarar hann: „Í þessari meðferð sem hann er í núna hef ég fulla trú á honum og ég er nú þegar búinn að fyrirgefa honum og hlakka til þess að eyða tíma með bróður mínum.“ Óðinn talar um hvernig það að upplifa sig útundan enda talar hann um að vera einn af fáum sem hefur ekki prófað kannabis og segist hann eiga fullt af vinum sem reykja kannabis og taka spítt og halda að það sé töff. Hann vill að það sé skýrt, það er ekki töff að nota fíkniefni. Það er sorglegt og það er enn sorglegara að monta sig á því eða að hafa það viðhorf að það sé eitthvað til að upphefja sig yfir. 

Sjá einnig: Fíknin verður sterkari er móðurástin


Óðinn hefur, þrátt fyrir ungan aldur, upplifað margt sem tengist neyslu í gegnum ástvini en hann hefur bæði misst ástvin vegna neyslunnar og af slysförum eftir að neyslu lauk. Hann tók afstöðu gegn því að nota hugbreytandi efni sjálfur vegna þess að hann veit hvert það getur tekið hann en í þættinum segir hann okkur frá nokkrum atvikum tengdum neysluheimi bróður síns sem hann þurfti að horfa upp á.
Við mælum með að hlusta á þennan magnaða unga mann sem hefur einstaka sýn á lífið og þennan sjúkdóm.

https://open.spotify.com/episode/3KQkRpVgE6XPCwNuhJ1p3g?si=6vBIcCsqQsaRAq8n9bZOPw&dl_branch=1

SHARE