Svína purusteik

Það getur verið trix að elda purusteik rétt. Hér er ein frábær uppskrift frá Gott í matinn.

Uppskrift fyrir c.a. 4 manns:

  • 1 stk – svínasíða
  • 3 stk – Lárviðarlauf
  • 1 msk – Piparkorn
  • 1 stk – laukur, skorinn gróft
  • 2 stk – teningar af svínakjötskrafti eða 2 msk svínakraftur
  • Flögusalt, t.d. gott sjávarsalt

Aðferð:

Skref 1

  • Setjið kjötið í stóran pott ásamt lárviðarlaufum, piparkornum, lauk og kjötkraftinum.
  • Hellið vatni yfir þannig að rétt fljóti yfir kjötið.

Skref 2

  • Setjið á eldavél og kveikið undir, hleypið suðunni rólega upp (ég nota stillingu 7 af 10). Þegar suðan er komin, lækkið þá vel undir og leyfið kjötinu að malla við vægan hita í um 40 mínútur.

Skref 3

  • Hitið ofn í 240 gráður, gjarnan með blæstri.

Skref 4

  • Takið kjötið úr pottinum og leggið í fat, puruhliðina upp, leyfið aðeins að rjúka úr því og þerrið með eldhúspappír.
  • Ef það er búið að skera í kjötið, farið þá aftur í rifurnar með beittum hníf, gerið jafnvel fleiri rendur og skerið vel alveg niður að kjötinu.
  • Nuddið svo vel af salti á puruna, og passið að fara vel ofan í rifurnar en líka að hafa salt ofan á skinninu.

Skref 5

  • Setjið inn í ofn og látið puruna stökkna og “poppast”.
  • Þetta getur tekið 20-40 mínútur.
  • Fylgist vel með kjötinu.
SHARE