Úrbeinuð kjúklingalæri með sólþurrkuðum tómötum og parmesan osti

Þessi kjúklingur algjört sælgæti frá Freistingarthelmu

Innihald 

8 stk úrbeinuð kjúklingalæri

5 msk smjör

1 hvítlaukur

1 1/2 dl vatn

1 stk kjúklingateningur

1 1/2 dl rjómi

10 stk sólþurrkaðir tómatar

80 gr rifinn parmesan ostur

1/4 tsk oregano

1/4 tsk basilíka 

1/4 tsk rauður pipar (red pepper flakes)

nokkur blöð af ferskri basilíku

salt og pipar 

Aðferð

Setjið 3 msk af smjöri á pönnu, kryddið kjúklingalærin með salti og pipar og steikið við háan hita í rúmlega 2 mínútur á hvorri hlið.

Lækkið hitann og eldið kjúklinginn í gegn og takið hann svo af pönnunni. Setjið restina af smjörinu á pönnuna, 2 msk, ásamt hvítlauknum (ég nota hvítlaukspressu eða sker hann smátt niður) steikið hvítlaukinn örlítið en passið að láta hann ekki brenna.

Bætið saman við vatni, kjúklingakrafti, rjóma, sólþurrkuðum tómötum, parmesan osti og öllu kryddi saman við og hrærið þar til sósan hefur náð að þykkna örlítið. Þegar sósan hefur fengið að malla á pönnunni í rúmlega 10-15 mínútur setji þið kjúklinginn ofan í sósuna ásamt ferskri basilíku og látið malla í aðrar 5 mínútur.

Saltið og piprið að vild. Fyrir ykkur sem eruð hrifin af sterkum mat þá er um að gera að bæta örlítið af rauðum pipar saman við. Ég mæli með að gera réttinn ekki of sterkan ef þið eruð með börn, börnin mín kvörtuðu örlítið undan því hversu sterkur hann var þannig ég tók frá smá kjúkling og sósu fyrir þau og kryddaði svo meira fyrir okkur.

Ég sauð hrísgrjón með þessum rétti og gerði ferskt salat. Einnig bætti ég við auka parmesan osti þegar kjúklingurinn var kominn á diskinn því mér finnst hann svo hrikalega góður. 

SHARE