„Við getum verið hugrökk, þótt við séum hrædd“

Tiny Toast hefur farið af stað með skemmtilegt samstarfsverkefni með Míu Magic. 

Mia Magic er góðgerðarfélag sem einblínir á að gleðja langveik börn og foreldra þeirra og hefur m.a. gefið út bókina ,,Mía fær lyfjabrunn”. Á meðan Tiny Toast sérhæfir sig í hágæða, umhverfisvænum vörum en helsta markmið þeirra er að vekja fólk til umhugsunar og styrkja góð málefni.

Mia Magic og Tiny Toast leggja bæði mikið upp úr því að láta gott af sér leiða og þar af leiðandi er þetta alveg einstakt samstarf.


Um ræðir sérstaka vörulínu sem er innblásin af línunni “Við getum verið hugrökk, þótt við séum hrædd” – sem er tekin úr bókinni Mía fær lyfjabrunn.Hluti ágóðsins af hverri sölu fer svo beint til Mía Magic, svo að þau geti haldið áfram að gleðja langveik börn og fjölskyldur þeirra. 

Við hvetjum ykkur eindregið að kíkja á vefsíðu Tiny Toast og kynna ykkur þessa nýja vörulínu. Einnig er hægt að fylgjast með þeim á Instagram undir nafninu @Tiny.Toast.Store og @miamagic.is .


Sjá einnig:

SHARE