5 merki um að maki þinn sé háður klámi

Nú á dögum er mjög auðvelt aðgengi að klámi og það er eiginlega alveg sama hverju fólk leitar að, það er til á netinu. Sumt fólk notar klám til að krydda kynlífið sitt en svo getur það gerst að annar aðilinn geti ekki slökkt á kláminu, sé sífellt með löngun í það og verður því háður því.

Ef þig grunar að maki þinn sé með klámfíkn, þá eru fimm merki sem þú getur komið auga á:

1. Notar tölvuna eingöngu í einrúmi

Þessi hegðun gerir viðkomandi kleift að vafra um vefinn og skoða efni án þinnar vitundar. Ef þú skyldir til dæmis kona inn í herbergið og hann/hún lokar síðunni sem hann/hún er á mjög snögglega er það mjög sterk vísbending.

2. Ótrúlega miklum tíma varið í tölvunni

Flestir klámfíklar munu, ef þeir fá tækifæri, eyða öllum tíma sínum í að skoða klám eftir því sem fíknin þróast. Þetta á við um tíma í vinnu og heima. Þeir gætu gleymt sér tímunum saman í tölvunni og finna allskonar skýringar á því.

3. Eyðir út vafrasögunni

Flestir klámfíklar eru klárir í að fela spor sín. Þeir eyða reglulega vafrasögu (history) tölvunnar sinna og vafrakökum (cookies) til að koma í veg fyrir að þú getir séð hvaða síður þeir heimsækja.

4. Reiðist eða fer í vörn þegar klámáhorf ber á góma

​Þessir einstaklingar eru mjög viðkvæmir fyrir öllum aðdróttunum um að þeir séu að horfa á klám. Venjulega eru viðbrögðin við hvers kyns „ásökunum“ öfgakennd og í algjöru ósamræmi við spurninguna.

​5. Skortur á nánd

Klámfíklar eiga sér fantasíur sem eru uppfylltar á netinu. Það getur orðið til þess að kynlífið, með makanum sem er kannski allt öðruvísi en fantasían, kveikir ekki lengur í viðkomandi.

Ef þú hefur áhyggjur af klámfíkn maka er oft mikilvægasta skrefið sem þú getur tekið að fá faglega aðstoð frá fíkniráðgjafa. Saman getið þið skipulagt leið til að takast á við vandamálið og fengið viðeigandi aðstoð við það.

Heimildir: Yourtango.com


​Sjá einnig:

SHARE