Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.
En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?
Hrúturinn
21. mars – 19. apríl
Þú verður að hugsa um sjálfa/n þig í byrjun mánaðarins. Þú finnur fyrir þörf fyrir að taka stjórn, láta rödd þína heyrast og ganga fram með sjálfstrausti. Þú gætir upplifað að hlutir sem hafa virkað hingað til, gera það ekki lengur.
Í starfi og persónulegu lífi gæti verið að þú færð upp í hendurnar eitthvert verkefni sem kallar á þig — en það er mikilvægt að vera þolinmóð/ur þegar kemur að breytingum því ef þú ferð of hratt getur það leitt til klaufamistaka. Í samböndum skaltu gæta þess að hlusta jafn mikið og þú talar. Það sem þú segir núna hefur áhrif á það sem gerist í framtíðinni.
Seinna í mánuðinum færðu tækifæri til að dýpka tengslin og sýna þínar bestu hliðar — ekki bara forgrunninn. Þú ert að byggja upp meira sjálfstraust og innra öryggi. Nú er rétti tíminn til að skipuleggja þig og hætta því sem er ekki lengur gagnlegt fyrir þig.


