Stjörnuspá fyrir nóvember 2025 – Meyjan

Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.

En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?

Meyjan
23. ágúst — 22. september

Nóvember verður mánuðurinn sem fer í það að hreinsa til á verkefnalistanum þínum og skipuleggja hvernig þú munt leysa útstandandi verk, sem þú hefur kannski látið sitja á hakanum. Þér gæti orðið ljóst að verkefni sem þú hélst að væru leyst eru það kannski ekki og þau þyrftir að setja þau efst á forgangslistann, en ekki gera neitt í fljótfærni.

Þú gætir þurft að skoða hvernig daglegar venjur þínar eru og hvaða venjur hjálpa þér til að stuðla að langvarandi árangri. Það gæti verið að þú þurfir að breyta einhverju varðandi vinnubrögð þín eða viðhorf til ákveðinna hluta.

Hlustaðu á líkama þinn. Ef þú færð einhver viðvörunarmerki skaltu hlusta á þau og bregðast við. Í samböndum skaltu muna að þú átt ekki bara að vera til staðar fyrir aðra heldur þurfa aðrir að vera til staðar fyrir þig. Það er styrkur í því að leyfa tilfinningum sínum að sjást í litlu atriðunum ekki bara í risastórum atriðum.