Hvort sem við trúum því eða ekki, þá er október að verða búinn og nóvember að taka við. Mánuðurinn fyrir jól! Án þess að við viljum vera að stressa ykkur upp. Jólin koma á sama tíma og alltaf, hvort sem þú sért „búin/n að öllu“ eða ekki.
En það er ennþá nógur tími og við höfum allan nóvember til að hugsa um núna. Hvað segja stjörnurnar okkur um þennan skemmtilega mánuð?
Fiskurinn
19. febrúar – 20. mars
Nóvember verður mánuður andlegrar vakningar og róttæks heiðarleika. Fyrstu vikur mánaðarins finnurðu fyrir þörf til að kafa dýrpra í eigin sannleika, finna tilgang í því sem áður var óljóst.
Það reynir á þig í vinnunni núna en það verður bara til þess að þér opnast ný tækifæri. Notaðu þér allar aðstæður sem kostur er á.
Í samböndum gæti þú fundið fyrir meiri samkennd og næmni, en passaðu þig á að taka ekki á þig of mikla orku annarra. Notaðu næmi þitt sem gjöf, ekki byrði. Seinni hluti mánaðarins, finnurðu fyrir auknu hugrekki til að láta drauma þína rætast.


